Kokkur Sindri Guðbrandur Sigurðsson lenti í 8. sæti í Bocuse d’Or.
Kokkur Sindri Guðbrandur Sigurðsson lenti í 8. sæti í Bocuse d’Or.

Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði 8. sæti í Bocuse d'Or, heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu, sem haldin var í Lyon í Frakklandi í byrjun vikunnar.

Alls kepptu 24 þjóðir til úrslita eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt í undankeppnum í sínum heimsálfum. Fulltrúi Frakklands vann til gullverðlauna, fulltrúi Danmerkur var í 2. sæti og fulltrúi Svíþjóðar í 3. sæti.

Eins og matarvefur mbl.is hefur fjallað um er Bocuse d'Or virtasta matreiðslukeppni í heimi og eru þátttakendur meðal fremstu matreiðslumanna sinna landa. Keppnin er því hörð og miklar kröfur gerðar til keppenda.

Glæsilegur árangur

„Sindri hafði 5½ klukkustund til þess að matreiða fiskrétt og kjötrétt fyrir 24 dómara. Afraksturinn var sannkallað listaverk og var

...