Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna landeldis á Grundartanga kemur fram að matvælafyrirtæki skuli ekki staðsett nálægt atvinnurekstri sem geti haft mengandi áhrif á starfsemina. Norðurál og Elkem á Íslandi eru með starfsemi á Grundartanga.
Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, telur best að framleiða matvæli þar sem framleiðsluumhverfið sé öruggt með tilliti til matvælaöryggis og því fari ekki vel á að stunda matvælaframleiðslu á stóriðjusvæði.
Spurður hvernig farið verði með starfsleyfi fyrir 28 þúsund tonna ársframleiðslu Aurora fiskeldis ehf., sem fyrirhuguð er á Grundartanga, segir hann að heilbrigðiseftirlitið sé búið að gefa umsögn vegna umhverfismats
...