Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstjóri Stuðlabergs með meiru átti afmæli 15. janúar og vaknaði með vísu á vörunum. Fátt er nú mér til meins mun ekki sakna neins; sæll og glaður, sjálfmiðaður, - áttatíu og eins
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstjóri Stuðlabergs með meiru átti afmæli 15. janúar og vaknaði með vísu á vörunum.
Fátt er nú mér til meins
mun ekki sakna neins;
sæll og glaður,
sjálfmiðaður,
- áttatíu og eins.
Ekkert jafnast á við þorramatinn. Um það þráttar síst Jón Arnkelsson:
Ef þín lund er eitthvað þung
það efalaust bætir þitt geð
að setjast niður með súran pung
og sötra mjólkurglas með.
Ingólfur Ómar Ármannsson tekur undir það:
Nú er best að
...