Þingflokkur Samfylkingar hefur gert kröfu um að fá úthlutað stærsta þingflokksherberginu í Alþingishúsinu í krafti stærðar sinnar, en svo vill til að það er þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðismenn taka þessu fjarri, segja enga þörf á…
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þingflokkur Samfylkingar hefur gert kröfu um að fá úthlutað stærsta þingflokksherberginu í Alþingishúsinu í krafti stærðar sinnar, en svo vill til að það er þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokks.
Sjálfstæðismenn taka þessu fjarri, segja enga þörf á því að þeir rými þingflokksherbergið og að rofin verði 84 ára söguleg tenging; í þinghúsinu sé að finna fleiri salarkynni sem rúmi mun stærri þingflokka en Samfylkingin hafi yfir að ráða.
Samfylkingin fékk 15 þingmenn kjörna í nýliðnum kosningum en Sjálfstæðisflokkur 14.
Andmæla kröfu Samfylkingar
„Jú, skrifstofustjóri Alþingis sendi mér í upphafi mánaðarins erindi um að Samfylkingin hefði óskað eftir að fá úthlutað
...