Í nútímasamfélagi þar sem margt er þungt, streituvaldandi og erfitt, hvort sem við lítum okkur nær eða fjær í heiminum, þá er dásamlegt að eiga sem áhugamál einhvern heim sem hægt er að hverfa inn í og sækja sér þar raunveruleikahvíld
Jane Austen-safnið í Bath Kristín hjá styttu af Jane Austen ásamt leiðsögumanninum George, sem gekk með íslenska hópnum í fótspor Jane í Bath.
Jane Austen-safnið í Bath Kristín hjá styttu af Jane Austen ásamt leiðsögumanninum George, sem gekk með íslenska hópnum í fótspor Jane í Bath.

Kristín Heiða Kristinsdóttir

khk@mbl.is

Í nútímasamfélagi þar sem margt er þungt, streituvaldandi og erfitt, hvort sem við lítum okkur nær eða fjær í heiminum, þá er dásamlegt að eiga sem áhugamál einhvern heim sem hægt er að hverfa inn í og sækja sér þar raunveruleikahvíld. Heim þar sem við leyfum huganum að hvíla öruggum við eitthvað annað en eigin áhyggjur, það er svo gott fyrir taugakerfið og dregur úr streitu og depurð,“ segir Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og einlægur aðdáandi Jane Austen, en hún blés í liðinni viku til stofnfundar Aðdáendaklúbbs Jane Austen.

„Tilgangurinn er að krydda tilveruna með því að skapa samveru- og samræðuvettvang fyrir áhugafólk um Jane Austen og verk hennar. Okkur kom sannarlega á óvart að þrátt fyrir hríð og slabb þennan dag, þá streymdi fólk

...