Telma Ívarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, tók í síðustu viku stórt skref á ferli sínum þegar hún samdi við skoska félagið Rangers og hélt þannig í atvinnumennsku í fyrsta sinn. Markvörðurinn var samningslaus eftir að hafa orðið…
Glasgow Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er hæstánægð með að hafa samið við stórlið Rangers og hlakkar til dvalarinnar í Glasgow.
Glasgow Landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er hæstánægð með að hafa samið við stórlið Rangers og hlakkar til dvalarinnar í Glasgow. — Ljósmynd/Rangers

Skotland

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

Telma Ívarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, tók í síðustu viku stórt skref á ferli sínum þegar hún samdi við skoska félagið Rangers og hélt þannig í atvinnumennsku í fyrsta sinn. Markvörðurinn var samningslaus eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki á síðasta tímabili og fór því til skoska félagsins á frjálsri sölu.

„Tilfinningin er mjög góð. Þetta var búið að vera í gangi í smá tíma. Það var alltaf verið að bíða eftir atvinnuleyfinu og öllu sem fylgir því að flytja til Bretlands.

Tilfinningin að hafa skrifað undir er frábær. Ég er mjög ánægð með að vera komin hingað og líður mjög vel hérna. Ég held að þetta eigi eftir að vera geggjað,“ sagði Telma

...