— Morgunblaðið/Eggert

Floni gaf út plötuna Floni 3 í október eftir fimm ára bið og heldur stórtónleika í Listasafni Reykjavíkur 21. febrúar. Í Ísland vaknar ræddi hann ferlið og hvernig föðurhlutverkið hefur breytt lífi hans. „Ég myndi ekki vilja fara til baka í líf án þess, því að hann er besti vinur minn,“ sagði hann um son sinn. Hann viðurkenndi að hafa oft verið nálægt því að hætta í tónlist. „Það voru mörg tækifæri til að hætta, en ég gerði það ekki,“ sagði hann og bætti við að box hefði hjálpað sér að halda sér í jafnvægi.

Viðtalið er í heild sinni á K100.is.