„Þetta eru svakalega flottar hugmyndir og mjög spennandi verkefni,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð. Hún skrifaði í vikunni undir samning um úthlutun lóðar fyrir hótelbyggingu við höfnina á Bíldudal
Samið Jens Valdimarsson, Valdimar Gunnarsson og Gerður Sveinsdóttir.
Samið Jens Valdimarsson, Valdimar Gunnarsson og Gerður Sveinsdóttir.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Þetta eru svakalega flottar hugmyndir og mjög spennandi verkefni,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð.

Hún skrifaði í vikunni undir samning um úthlutun lóðar fyrir hótelbyggingu við höfnina á Bíldudal. Þar er ráðgert að á næstu árum verði byggð upp hús í gömlum stíl og glæsileg hótel- og veitingaaðstaða muni líta dagsins ljós. Forsvarsmennn félagsins BA 64 ehf., þeir Jens Valdimarsson og Valdimar Gunnarsson, skrifuðu undir samninginn við bæjarfélagið.

Jens segir í samtali við Morgunblaðið að þessi samningur sé aðeins fyrsta skrefið af mörgum sem stíga þurfi áður en þessi áform verða að veruleika. Ráðgert sé að endurgera þrjú gömul hús og koma upp 50 herbergja

...