„Ég fagna þessu mjög. Ég og fleiri lögreglumenn höfum verið að vekja athygli á þessu víða, því sektarfjárhæð fyrir vopnaburð hefur verið allt of lág og þetta er því mikið fagnaðarefni,“ segir Fjölnir Sæmundsson, formaður landssambands lögreglumanna
Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Ég fagna þessu mjög. Ég og fleiri lögreglumenn höfum verið að vekja athygli á þessu víða, því sektarfjárhæð fyrir vopnaburð hefur verið allt of lág og þetta er því mikið fagnaðarefni,“ segir Fjölnir Sæmundsson, formaður landssambands lögreglumanna.
Leitað var viðbragða hans við þeim tíðindum að búið er að hækka lágmarkssekt fyrir vopnaburð á almannafæri úr 10 þúsund krónum í 150 þúsund sem hefur og þær afleiðingar að slíkt brot fer á sakaskrá viðkomandi. Fagnar Fjölnir því sérstaklega að brotið sé fært á sakaskrá, þannig að gjörðin fylgi fólki.
Segir Fjölnir að lögreglumenn hafi kallað eftir þessu því vopnaburður ógni öryggi lögreglumanna, ekki síst sú staðreynd hve mjög vopnaburður hefur færst í vöxt og
...