Halla Gunnarsdóttir, sitjandi formaður VR, er komin með mótframboð til formanns fyrir næsta aðalfund. Bjarni Þór Sigurðsson hefur tilkynnt framboð, en hann er stjórnarmaður í VR og hefur verið félagi þar í 30 ár, þar af í stjórninni frá árinu 2012.
Frestur til að skila framboðum til formanns eða stjórnar VR rennur út á hádegi næstkomandi mánudag, 3. febrúar.
„Ég hef unnið megnið af starfsævinni við verslunar- og skrifstofustörf, fjölmiðla og hin síðari ár hef ég einnig starfað að við leiðsögn,“ segir m.a. í tilkynningu frá Bjarna Þór.
Hann segist í störfum sínum fyrir VR hafa lagt áherslu á að félagið og verkalýðshreyfingin hafi frumkvæði að uppbyggingu „heilbrigðs“ húsnæðismarkaðar.