— Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson

Skíðasvæðin á landinu hafa flest verið opin síðustu daga, enda nóg af snjó og veðrið verið hið ágætasta. Miðað við spár fram undan gæti staðan breyst fljótt.

Nemendur úr Giljaskóla á Akur­eyri fjölmenntu í Hlíðarfjallið í gær þegar haldinn var sérstakur útivistardagur í skólanum. Hér eru nokkrir krakkar komnir í lyftuna tilbúin í eina af mörgum ferðum sínum í gær. Um 400 nemendur voru á svæðinu þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði en forráðamenn Hlíðarfjalls buðu nemendum Giljaskóla að mæta í brekkurnar. Þá hefur verið frítt í fjallið á mánudögum og nú síðast nýttu sér það um 900 manns.