Mikið var um dýrðir á nýársfagnaði á vegum kínverska sendiráðsins í Háskólabíói síðastliðið föstudagskvöld. Skemmtunin var skipulögð í samvinnu við yfirvöld menningarmála í Shanxi-héraði og tóku um tuttugu listamenn þátt í sýningunni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mikið var um dýrðir á nýársfagnaði á vegum kínverska sendiráðsins í Háskólabíói síðastliðið föstudagskvöld. Skemmtunin var skipulögð í samvinnu við yfirvöld menningarmála í Shanxi-héraði og tóku um tuttugu listamenn þátt í sýningunni.
Áður en sýningin hófst ávörpuðu þau He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, og Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, gesti.
He sagði samstarf ríkjanna dýpka með hverju árinu. Þá væri verslun ríkjanna að aukast og Kína orðið helsta viðskiptaríki Íslands í Asíu.
Inga sagði sömuleiðis að samstarf ríkjanna væri með ágætum þótt höf og álfur skildu þau að.
Kínverjar héldu upp
...