Þórunn er gift Tómasi Jónssyni sem er ljósmyndari og grafískur hönnuður og saman eiga þau fjögur börn og níu barnabörn. Þau byrjuðu saman þegar hún var sextán ára og hann átján. Samband þeirra er einstaklega gott og farsælt en þau fagna bráðlega fimmtíu og fimm ára brúðkaupsafmæli. Hjónin búa í einstaklega skemmtilegu gömlu timburhúsi í Þingholtunum og óhætt að segja að heimili þeirra endurspegli hinn mikla sköpunarkraft sem Þórunn Elísabet býr yfir.
Hefur gjarnan unnið með arfleifð íslenskra kvenna
Hún lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og var dregin inn í Þjóðleikhúsið 1981 í búningahönnun að eigin sögn. „Ég vinn mikið með timbur, nagla og með efni og oft hef ég unnið með arfleifð íslenskra kvenna, til dæmis í gegnum íslenska þjóðbúninginn sem ég hef bútað niður í list. En í leikhúsinu eru búningarnir og leikmyndin ramminn og innan hans hreyfist allt. En þetta
...