Ef áætlarnir helstu framkvæmdaaðila ganga eftir verða verk fyrir um 264 milljarða króna boðin út í ár. Yrði þetta tvöföldun frá útboðum sömu aðila á síðasta ári, sem námu 134,5 milljörðum króna. Þetta kom fram á Útboðsþingi í gær sem Samtök…
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ef áætlarnir helstu framkvæmdaaðila ganga eftir verða verk fyrir um 264 milljarða króna boðin út í ár. Yrði þetta tvöföldun frá útboðum sömu aðila á síðasta ári, sem námu 134,5 milljörðum króna.
Þetta kom fram á Útboðsþingi í gær sem Samtök iðnaðarins, Samtök innviðaverktaka og Mannvirki, félag verktaka, stóðu að. Tíu verkkaupar kynntu sín áform fyrir þetta ár, þ.e. Landsvirkjun, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), Reykjavíkurborg, Nýi Landspítalinn, Vegagerðin, Isavia, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Veitur, Landsnet og Betri samgöngur, sem standa að borgarlínunni.
Dýrkeypt aðgerðaleysi
Þrír verkkaupar eru með langstærstan hlut af fyrirhuguðum útboðum, eða fyrir um 185 milljarða
...