Strandveiðikerfið hefur á undanförnum árum stækkað verulega en er ekki kominn tími til að staldra við og endurmeta áhrif þess?
Pálmi Gauti Hjörleifsson
Pálmi Gauti Hjörleifsson

Pálmi Gauti Hjörleifsson

Strandveiðikerfið hefur á undanförnum árum stækkað verulega en er ekki kominn tími til að staldra við og endurmeta áhrif þess? Þegar kerfið var innleitt á fiskveiðiárinu 2008/2009 var það byggt á 3.450 tonnum af þorski, sem námu 2% af heildaraflanum það árið. Á fiskveiðiárinu 2023/2024 hefur þessi tala hins vegar margfaldast og er nú komin í 11.886 tonn, eða 5,4% af heildarafla þorsks, þrátt fyrir að sóknardagar í strandveiðum síðasta árs hafi aðeins verið 32 dagar. Nú eru uppi áætlanir um að fjölga dögum í 48 í sumar, sem gæti þýtt að afli fari allt upp í 15-25 þúsund tonn en enginn veit nákvæmlega hversu mikið.

Áhrif strandveiða á ríkið og samfélagið

Ný ríkisstjórn hefur sett sér markmið um að auka tekjur ríkissjóðs, greiða niður skuldir og bæta efnahagsstöðu landsins. Samhliða eru raddir sem

...