Ríflega 50 þúsund erlendir ríkisborgarar bjuggu á höfuðborgarsvæðinu 1. desember sl., samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Þar af ríflega 34.400 í Reykjavík. Þjóðskrá Íslands birti þessa tölfræði á dögunum en ýmislegt í henni vekur athygli

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Ríflega 50 þúsund erlendir ríkisborgarar bjuggu á höfuðborgarsvæðinu 1. desember sl., samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Þar af ríflega 34.400 í Reykjavík.

Þjóðskrá Íslands birti þessa tölfræði á dögunum en ýmislegt í henni vekur athygli. Þar með talið að um 30 þúsund af tæplega 80.400 erlendum ríkisborgurum voru skráðir utan höfuðborgarsvæðisins. Samsvarar það því að um 37% af erlendum ríkisborgurum hafi verið skráðir utan höfuðborgarsvæðisins. Það er töluvert hærra hlutfall en á landinu öllu en samkvæmt Þjóðskrá eru 80.360 af 405.864 íbúum landsins af erlendu bergi brotnir, eða tæplega 20% íbúanna.

Hlutfall erlendra ríkisborgara á höfuðborgarsvæðinu var hæst í Reykjavík (23,6%) en næst kom Hafnarfjörður (17,3%).

...