Franska leikkonan og kvikmyndagerðarkonan Noémie Merlant skrifar, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Les Femmes au Balcon sem sýnd var á Frönsku kvikmyndahátíðinni undir enska titlinum The Balconettes
Svalir Noémie Merlant var á Íslandi í tilefni af Frönsku kvikmyndahátíðinni en mynd hennar er sýnd í Bíó Paradís.
Svalir Noémie Merlant var á Íslandi í tilefni af Frönsku kvikmyndahátíðinni en mynd hennar er sýnd í Bíó Paradís. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Viðtal

María Margrét Jóhannsdóttir

mariamargret@mbl.is

Franska leikkonan og kvikmyndagerðarkonan Noémie Merlant skrifar, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Les Femmes au Balcon sem sýnd var á Frönsku kvikmyndahátíðinni undir enska titlinum The Balconettes. Myndin hefur vakið mikla athygli fyrir óvenjulega nálgun að jafnalvarlegu málefni og kynbundið ofbeldi er en þess má geta að rýnir Morgunblaðsins gaf myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum fyrir skömmu. Merlant var stödd hér á landi og settist niður með blaðamanni Morgunblaðsins sem fékk að forvitnast um tildrög myndarinnar.

Notar grínið sem verkfæri

The Balconettes er óvenjuleg og farsakennd gamanmynd þar sem ofbeldismenn fá makleg

...