Meistarar Fyrirliðinn Aron Sigurðarson hefur bikarana á loft eftir að KR varð Reykjavíkurmeistari í 41. sinn með 3:0-sigri á Val í úrslitaleik.
Meistarar Fyrirliðinn Aron Sigurðarson hefur bikarana á loft eftir að KR varð Reykjavíkurmeistari í 41. sinn með 3:0-sigri á Val í úrslitaleik. — Morgunblaðið/Karítas

KR tryggði sér í gærkvöld Reykjavíkurmeistaratitilinn í knattspyrnu karla með því að leggja erkifjendur sína í Val örugglega að velli, 3:0, í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í Egilshöll í Grafarvogi. Er þetta í 41. sinn sem KR verður Reykjavíkurmeistari.

Fyrir úrslitaleikinn í gærkvöldi hafði Valur unnið alla þrjá leiki sína í B-riðlinum en KR hafði unnið þrjá og tapað einum í A-riðlinum.

Staðan í hálfleik var 1:0 eftir að enski kantmaðurinn Luke Rae hafði komið KR yfir á 39. mínútu. Á 56. mínútu tvöfaldaði Jóhannes Kristinn Bjarnason forystu KR-inga.

Danski miðjumaðurinn Matthias Præst innsiglaði svo sigurinn með þriðja marki Vesturbæinga á 72. mínútu.

Tveir markahæstu leikmenn Reykjavíkurmótsins komu báðir úr röðum ÍR. Bergvin Fannar Helgason skoraði sex mörk og Guðjón Máni Magnússon fimm.