ADHD-samtökin gera alvarlegar athugasemdir við grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi. Grænbókin kom nýverið út og var skrifuð af þar til skipaðri nefnd af þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir rúmlega ári
Í brennidepli
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
ADHD-samtökin gera alvarlegar athugasemdir við grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi. Grænbókin kom nýverið út og var skrifuð af þar til skipaðri nefnd af þáverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir rúmlega ári.
Segja ADHD-samtökin í umsögn sinni í samráðsgátt að þau fagni að grænbókin hafi verið gerð, en telja þó alvarlega annmarka á vinnu starfshópsins. Segja þau núverandi útgáfu algerlega ónothæfa sem grundvöll frekari stefnumótunar í málaflokknum.
Fjallað var um grænbókina í Morgunblaðinu síðasta mánudag þar sem meðal annars kom fram að grænbókarnefndin teldi að gæðum á bæði greiningum og meðferð við taugaþroskaröskuninni ADHD væri ábótavant. Segir
...