Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er komin til enska úrvalsdeildarfélagsins Leicester City og hefur samið við það til hálfs þriðja árs. Hlín var nýbúin að framlengja samning sinn við Kristianstad í Svíþjóð en hún á fjögur ár að baki í…
Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er komin til enska úrvalsdeildarfélagsins Leicester City og hefur samið við það til hálfs þriðja árs. Hlín var nýbúin að framlengja samning sinn við Kristianstad í Svíþjóð en hún á fjögur ár að baki í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún hefur skorað 36 mörk í 90 leikjum. Á síðasta ári var hún næstmarkahæst í deildinni með 15 mörk. Leicester er í 11. sæti af 12 liðum ensku úrvalsdeildarinnar.