Ánægður Dagur Sigurðsson fagnar sætum sigri gegn Frökkum í leikslok í Arena Zagreb í gærkvöld.
Ánægður Dagur Sigurðsson fagnar sætum sigri gegn Frökkum í leikslok í Arena Zagreb í gærkvöld. — AFP/Anna-Christine Poujoulat

Dagur Sigurðsson er kominn með lið Króatíu í úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti karla í handknattleik eftir magnaða frammistöðu liðsins og sigur gegn öflugu liði Frakklands í undanúrslitaleik þjóðanna í Zagreb í gærkvöld, 31:28.

Króatar leika þar með til úrslita gegn Dönum eða Portúgölum í Bærum í Noregi á sunnudaginn en þau lið mætast í seinni undanúrslitaleiknum annað kvöld. Frakkar leika um bronsverðlaunin sama dag gegn tapliðinu úr leiknum í kvöld.

Með þessu er ljóst að Dagur verður fyrsti íslenski þjálfarinn til að vinna verðlaun á þremur stærstu mótum karla í handbolta. Hann hefur þegar stýrt Þýskalandi til gullverðlauna á Evrópumóti og bronsverðlauna á Ólympíuleikum og núna fær hann annaðhvort gullið eða silfrið á heimsmeistaramótinu á sunnudaginn.

Mögnuð

...