Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Við fögnum þessum fyrirætlunum og munum styðja þær, því það er lykilatriði að þessi framkvæmd, sem er löngu ákveðin, komist af stað,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið.
Leitað var viðbragða hans við ummælum arftaka hans í ráðuneytinu, Jóhanns Páls Jóhannssonar, í Morgunblaðinu í gær, um að frumvarp verði lagt fram á Alþingi strax í þingbyrjun, sem ætlað er að höggva á þann hnút sem Hvammsvirkjun er komin í í kjölfar nýfallins dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hann segir mikilvægt að ryðja strax úr vegi öllum hindrunum í kjölfar óvæntrar niðurstöðu héraðsdóms og að sama skapi að halda áfram að einfalda og afhúða regluverk og hleypa fleiri virkjunarkostum
...