Þrjár prinsessur bíða eftir prinsinum sínum og að ævintýri þeirra hefjist. Hvað gerist ef prinsinn kemur ekki? Um það fjallar Hver vill vera prinsessa?, nýr söngleikur í anda Disney-ævintýranna eftir Raddbandið, Söru Martí og Stefán Örn Gunnlaugsson …
Prinsessur Rakel Björk, Auður og Viktoría skipa Raddbandið og eru hér í hlutverki prinsessanna þriggja.
Prinsessur Rakel Björk, Auður og Viktoría skipa Raddbandið og eru hér í hlutverki prinsessanna þriggja. — Ljósmynd/Myriam Marti

Ragnheiður Birgisdóttir

ragnheidurb@mbl.is

Þrjár prinsessur bíða eftir prinsinum sínum og að ævintýri þeirra hefjist. Hvað gerist ef prinsinn kemur ekki? Um það fjallar Hver vill vera prinsessa?, nýr söngleikur í anda Disney-ævintýranna eftir Raddbandið, Söru Martí og Stefán Örn Gunnlaugsson sem verður frumsýndur í Tjarnarbíói á morgun, 1. febrúar, klukkan 13.

Raddbandið skipa söng- og leikkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. Þær hafa allar unnið saman áður í ólíkum leikhúsverkefnum en í covid-faraldrinum fóru þær að hittast til að syngja saman og úr varð prógramm um jólastress og móðurhlutverkið sem þær hafa flutt víða, meðal annars á tónleikum í Salnum í desember.

„Sara tók

...