Enn bólar ekki á svörum frá fjármálaráðherra eða skattstjóra um styrkjamálið, en líkt og fram kom eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag er málið til skoðunar þar á bænum og virðist raunar hafa verið útvíkkað
Ráðherra Daði Már Kristófersson hefur styrkjamálið enn til skoðunar.
Ráðherra Daði Már Kristófersson hefur styrkjamálið enn til skoðunar. — Morgunblaðið/Kristófer Liljar

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Enn bólar ekki á svörum frá fjármálaráðherra eða skattstjóra um styrkjamálið, en líkt og fram kom eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag er málið til skoðunar þar á bænum og virðist raunar hafa verið útvíkkað.

Fram kom í frétt á Vísi í gær að fjármálaráðherra hefði staðfest að Sjálfstæðisflokkur og Píratar hefðu ekki uppfyllt skilyrði laga til úthlutunar framlaga úr ríkissjóði þegar úthlutun fór fram hinn 1. febrúar árið 2022.

Athygli vekur að greiðslan átti sér ekki stað fyrr en í febrúar, en í lögunum er skýrt kveðið á um að hún eigi að fara fram fyrir 25. janúar.

Í þessari staðfestingu ráðherra kemur aðeins fram, það sem áður lá fyrir, að styrkir hafi verið greiddir úr ríkissjóði án þess að lagaskilyrðum hafi verið fullnægt.

Hins vegar er ekki ljóst hvers vegna fyrrgreindir tveir flokkar eru einir nefndir. Fyrir liggur að Flokkur

...