Á húðina notuðum við Vital Perfection-línuna frá Shiseido. Vital Perfection þéttir og sléttir húðina ásamt því að lyfta og móta umgjörð andlitsins. Húðin fær jafnari og bjartari ásýnd og hentar því sérstaklega vel fyrir þroskaðri húð. Mikilvægt er að hefja ferlið með hreinni húð, því er Refreshing Cleansing Water frá Shiseido tilvarin vara í undirbúning húðarinnar,“ segir Dýrleif.
Þar á eftir bar hún Elizabeth Arden 8 Hour Lip Protectant á varirnar til að næra þær vel og gefa þeim aukinn raka.
„Því næst setti ég Vital Perfection-augnmaska frá Shiseido, sem er virkur maski með retónóli sem vinnur hratt á línum, þrota og baugum. Gott er að láta þá liggja undir augunum í að minnsta kosti 15 mínútur. Retínól er eitt öflugasta innihaldsefnið til að virkja og styrkja kollagenfrumurnar í húðinni, en það eru þær sem halda hrnni unglegri og geislandi,“
...