Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% í janúar samkvæmt mælingu Hagstofunnar sem birt var í gær. Verðbólga á ársgrundvelli lækkaði fyrir vikið úr 4,8% í 4,6%. Verðbólga án húsnæðis hækkar hins vegar úr 2,8% í 3,0% en ólík þróun á þessa tvo…
Verðbólga Lækkun um 0,27% í janúar samkvæmt mælingu Hagstofunnar og mælist 4,6%. Líklegt að verðbólga lækki hraðar en spár gerðu ráð fyrir.
Verðbólga Lækkun um 0,27% í janúar samkvæmt mælingu Hagstofunnar og mælist 4,6%. Líklegt að verðbólga lækki hraðar en spár gerðu ráð fyrir. — Morgunblaðið/Eggert

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% í janúar samkvæmt mælingu Hagstofunnar sem birt var í gær. Verðbólga á ársgrundvelli lækkaði fyrir vikið úr 4,8% í 4,6%. Verðbólga án húsnæðis hækkar hins vegar úr 2,8% í 3,0% en ólík þróun á þessa tvo mælikvarða skýrist einna helst af óvæntri lækkun reiknaðrar húsaleigu að því er fram kemur í greiningu Íslandsbanka. Mæling janúarmánaðar er í neðri mörkum þess sem greiningaraðilar væntu en spár þeirra voru á bilinu -0,35-0,0% breyting.

Eldsneyti skilaði mestu hækkunaráhrifum allra undirliða í mánuðinum en það hækkaði um 3,6% í verði, að stórum hluta vegna hækkunar kolefnisgjalds og bensín- og olíugjalds. Mestum lækkunaráhrifum skiluðu flugfargjöld til útlanda en þau lækkuðu meira en greining bankans gerði ráð fyrir.

...