Þorgils Jón Svölu Baldursson
Þorgils Jón Svölu Baldursson

Handknattleiksmaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson er genginn til liðs við Valsmenn á nýjan leik en hann hefur leikið með Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni í hálft annað ár. Hann hefur misst af talsverðu af yfirstandandi tímabili vegna meiðsla. Þorgils er 27 ára gamall línumaður og hafði leikið með Val allan sinn feril áður en hann fór til Svíþjóðar.