96 verkefni hljóta styrk úr borgarsjóði á sviði menningarmála árið 2025, en úthlutun styrkjanna var kynnt í gær. Hæstan styrk, 2,5 milljónir króna, hlýtur Kammersveit Reykjavíkur en „sveitin fagnar 50 ára starfsafmæli á árinu og hyggur á fjölbreytt og viðamikið tónleikahald af því tilefni“, eins og segir í tilkynningu.
Samtímis var upplýst að Listhópur Reykjavíkur 2025 er Open, listamannarekið sýningarrými sem „hefur verið hreyfiafl í íslensku myndlistarsenunni frá því að það opnaði dyr sínar á Grandanum fyrir nokkrum árum“, eins og segir í tilkynningu. Nafnbótinni fylgir 2,5 milljóna króna styrkur í ár.
„Alls bárust 225 umsóknir um styrki úr borgarsjóði á sviði menningarmála sl. haust, þar sem sótt var um styrki fyrir tæplega 390 milljónir króna vegna verkefna á árinu 2025. Aldrei hafa
...