Hólmfríður Gísladóttir fæddist 6. september 1935 á Grund í Eyrarsveit. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi 23. janúar 2025.
Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Karel Elísson, f. 10.5. 1899, d. 25.12. 1973 bóndi á Grund í Eyrarsveit og verkamaður í Grafanesi (Grundarfirði) og Jóhanna Hallgerður Jónsdóttir, f. 27.7. 1906, d. 4.5. 1937, húsfreyja á Grund.
Systkini hennar voru: Vilborg Guðrún, f. 16.7. 1927, d. 2.6. 1979; Pálína, f. 27.1. 1929, d. 12.4. 2022; Elís, f. 26.11. 1932, d. 26.4. 2020.
Hólmfríður giftist 20. mars 1954 Eggerti Thorberg Kjartanssyni, f. 20. desember 1931, d. 17. apríl 2022, múrara. Hann var sonur Kjartans Eggertssonar bónda og kennara í Fremri-Langey á Breiðafirði og konu hans Júllíönu Silfár Einarsdóttur
...