Valur Anton Rúnarsson er núna á ððru ári sem aðstoðarþjálfari.
Valur Anton Rúnarsson er núna á ððru ári sem aðstoðarþjálfari. — Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Anton Rúnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Íslands- og bikarmeistara Vals í handknattleik kvenna frá og með næsta sumri. Hann tekur þá við af Ágústi Jóhannssyni sem tekur á sama tíma við karlaliði Vals. Anton samdi til ársins 2028 en hann er núverandi aðstoðarþjálfari karlaliðs Vals. Anton, sem er 36 ára gamall, er uppalinn Valsmaður, lék lengi með karlaliði félagsins, sem og með Nordsjælland í Danmörku og Emsdetten í Þýskalandi.