Martin Hermannsson, fyrirliði þýska körfuknattleiksliðsins Alba Berlín, átti stórgóðan leik í Belgrad í gærkvöld þegar Alba lagði þar Maccabi Tel Aviv frá Ísrael að velli í Evrópudeildinni (Euroleague), 93:87. Martin náði tvöfaldri tvennu á 20 mínútum því hann skoraði 11 stig og átti 11 stoðsendingar fyrir Alba, auk þess sem hann tók tvö fráköst. Hann átti elleftu stoðsendinguna þegar enn voru tæpar fimm mínútur eftir af leiknum.