Jónas Lárusson var fæddur í Dalhúsum í Bakkafirði 30. júní árið 1958. Hann lést á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn 23. janúar 2025.
Hann var sonur hjónanna Lárusar Jóhannssonar, f. 1924 og Aðalbjargar Jónasdóttur, f. 1937. Lárus lést árið 2004 en Aðalbjörg lifir son sinn.
Jónas var elstur fjögurra sona þeirra hjóna. Bræður hans: a) Jóhann Ólafur, fæddur 1961, látinn 2021. b) Sigurður, fæddur 1965 og c) Kristinn, fæddur 1967.
Jónas, eða Ninni eins og hann var oft kallaður, ólst upp fyrstu æviárin í Dalhúsum þar sem foreldrar hans stunduðu sauðfjárbúskap. Haustið 1966 fluttust þau í Hallgilsstaði á Langanesi og hófu búskap þar. Á Hallgilsstöðum ólst Jónas upp við almenn sveitastörf og var hann vel til þeirra starfa fallinn. Barnaskólagöngu hóf hann níu ára gamall að Efra-Lóni, síðan hjá
...