Karphúsið Ríkissáttasemjari lagði fram tillögu í kjaradeilunni.
Karphúsið Ríkissáttasemjari lagði fram tillögu í kjaradeilunni. — Morgunblaðið/Eggert

Samninganefndir kennara, ríkis og sveitarfélaga hafa frest til klukkan 13 á morgun til að taka afstöðu til innanhússtillögu sem Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði fram í kjaradeilunni þeirra á milli. Tillagan jafngildir kjarasamningi verði hún samþykkt. Felur hún m.a. í sér að deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með virðismati og verkáætlun til 20 mánaða.

Efn­is­lega er um að ræða fram­hald á veg­ferð sem rík­is­sátta­semj­ari lagði upp með í lok nóv­em­ber þegar samn­inga­nefnd­irn­ar gerðu með sér sam­komu­lag um friðarskyldu til tveggja mánaða. Þess ber að geta að þar sem ekki er um miðlun­ar­til­lögu að ræða fer hún ekki beint í at­kvæðagreiðslu hjá fé­lags­fólki Kenn­ara­sam­bands Íslands.

„Ég legg til að þessi deila um jöfn­un launa á milli markaða verði út­kljáð með því að aðilar fari í sam­eig­in­lega veg­ferð sem er ann­ars veg­ar fólg­in í virðismati starfa og hins veg­ar í verk­­­áætl­un sem aðilar myndu vinna á næstu

...