Stjarnan hélt sínu striki þegar liðið heimsótti Grindavík og vann öruggan sigur, 108:87, í 16. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. Stjarnan er áfram á toppi deildarinnar, nú með 26 stig, og Grindavík heldur kyrru fyrir í fjórða sæti með 16 stig
Smárinn Ægir Þór Steinarsson og Hilmar Smári Henningsson sækja að Arnóri Tristani Helgasyni í leik Grindavíkur og Stjörnunnar í gærkvöldi.
Smárinn Ægir Þór Steinarsson og Hilmar Smári Henningsson sækja að Arnóri Tristani Helgasyni í leik Grindavíkur og Stjörnunnar í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Karítas

Körfuboltinn

Gunnar Egill Daníelsson

gunnaregill@mbl.is

Stjarnan hélt sínu striki þegar liðið heimsótti Grindavík og vann öruggan sigur, 108:87, í 16. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi.

Stjarnan er áfram á toppi deildarinnar, nú með 26 stig, og Grindavík heldur kyrru fyrir í fjórða sæti með 16 stig.

Gestirnir úr Garðabænum hófu fyrstu þrjá leikhlutana af gífurlegum krafti og náðu þannig þægilegri forystu, sem gerði fjórða og síðasta leikhluta að nokkurs konar formsatriði fyrir Stjörnuna.

Bæði lið tefldu fram nýjum leikmönnum í gærkvöldi. Slóveninn Jaka Klobucar lék fyrir Stjörnuna og uppöldu Grindvíkingarnir Bragi Guðmundsson og Arnór

...