Valdimar Sveinsson, nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands, hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2025 fyrir verkefnið Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna. Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti verðlaunin.
Markmið verkefnisins var að kortleggja þætti sem gegna lykilhlutverki í væga ofkælingarviðbragðinu, svo unnt verði að virkja viðbragðið með lyfjum í stað ofkælingar.
Í dag hafa fimm þættir verið staðfestir sem hlutar af væga ofkælingarviðbragðinu og verkefnið uppgötvaði eitt lyf sem virðist virkja ferilinn en verkunarhátturinn er óljós. Þróað var lífupplýsingafræðileg greining sem nýtti opinber RNA-raðgreiningargögn frá alþjóðlegum gagnasöfnum.
Leiðbeinendur verkefnisins voru Kimberley Anderson rannsóknarstofustjóri og Hans Tómas Björnsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.