Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Borgarstjóri og kjörnir fulltrúar í umhverfis- og skipulagsráði hafa ítrekað hunsað athugasemdir íbúa á Hlíðarenda varðandi áform um þéttingu byggðar á svæðinu. Íbúar á svæðinu hafa síðustu mánuði reynt að ná í forsvarsmenn borgarinnar án árangurs vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu.
Þetta segir Anna Jörgensdóttir, íbúi á Hlíðarenda. Hún segir íbúa á svæðinu vera að skoða stöðu sína vegna gjörbreyttra forsendna í aðal- og deiliskipulagi hverfisins frá árinu 2022. Anna sendi tölvupóst á Einar Þorsteinsson borgarstjóra og kjörna fulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar í síðustu viku en fátt hefur verið um svör. Í umræddum tölvupósti gagnrýnir Anna þéttingaráform borgarinnar á svæðinu og óskar eftir auknu samráði borgaryfirvalda við íbúa á svæðinu.
...