Friðrik Steingrímsson frá Mývatnssveit heyrði af því að fólki hefði verið sagt upp sem rannsakaði sakamál gegn Trump: Lýðræðið þar sagt er synd og sóa lífi flestra, óðum tekur á sig mynd einræðið þar vestra
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Friðrik Steingrímsson frá Mývatnssveit heyrði af því að fólki hefði verið sagt upp sem rannsakaði sakamál gegn Trump:
Lýðræðið þar sagt er synd
og sóa lífi flestra,
óðum tekur á sig mynd
einræðið þar vestra.
Veðurlýsingar Jóns Gissurarsonar eru engu líkar: „Hér á slóðum Stefáns G. hefur verið þoka í allan morgun. Örlítill norðaustan andvari, sem ekki nær einum metra á sekúndu, líður um svæðið með tveggja til þriggja gráðu frosti. Aðeins hefur muggað hér í nótt og snjódýptin svona um það bil í skóvarp. Verra gæti það alveg verið, en hrímið og þokan valda þó stundum minni hughrifum.
Enn við dokar vetrar
...