Þórarinn Arnar Sævarsson, einn þriggja kaupenda SAM-bíóhússins í Álfabakka, segir ekki standa til að rífa húsið heldur sé ætlunin að finna nýja leigutaka. Hann segir aðspurður það vera athyglisverða hugmynd að opna keilusal í húsinu
Álfabakki 8 Margir hafa gert sér glaðan dag í þessu húsi í Mjódd.
Álfabakki 8 Margir hafa gert sér glaðan dag í þessu húsi í Mjódd. — Morgunblaðið/Karítas

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Þórarinn Arnar Sævarsson, einn þriggja kaupenda SAM-bíóhússins í Álfabakka, segir ekki standa til að rífa húsið heldur sé ætlunin að finna nýja leigutaka. Hann segir aðspurður það vera athyglisverða hugmynd að opna keilusal í húsinu.

Fjallað er um kaupin í Morgunblaðinu í dag. Þar er rifjað upp að í lok nóvember 1981 var skemmtistaðurinn Broadway opnaður í kjallara hússins. Skömmu síðar, eða í byrjun mars 1982, hafi Árni Samúelsson opnað Bíóhöllina á efri hæðum hússins en tilkoma hennar þótti mikil tíðindi í sögu kvikmyndahúsa á Íslandi.

Fyrir unga fólkið í Breiðholti

„Þegar við byggðum Bíóhöllina 1982 var unga fólkið í Breiðholti. Við vorum fljótir að opna Bíóhöllina á sínum tíma. Það var lengi Íslandsmet

...