Það styttist í að uppbygging hefjist á nokkur hundruð íbúðum og atvinnuhúsnæði í Norður-Mjódd í Reykjavík.
Nánar tiltekið á lóðunum Stekkjarbakka 4-6 og Álfabakka 7, á svæðinu frá strætóstöðinni í Mjódd að Staldrinu, en þær eru í eigu fasteignaþróunarfélagsins Klasa.
Þær upplýsingar fengust frá Klasa að verið væri að vinna að uppdrætti og greinargerð ásamt ýmsum greiningum. Sú vinna væri langt komin og vonir bundnar við að málið yrði tekið fyrir hjá Reykjavíkurborg á næstunni og áformin þá kynnt nánar.
Rætt hefur verið um 450 íbúðir á svæðinu auk atvinnuhúsnæðis á jarðhæð.
Mjóddin er nú að ganga í endurnýjun lífdaga og eru nokkur verkefni í gangi. » 10