Píanóleikarinn Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og fiðluleikarinn Martin Frewer frumflytja þrjú verk fyrir píanó og fiðlu eftir John Speight í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í dag, miðvikudaginn 5. febrúar, kl. 12.15. Í tilkynningu segir meðal annars að John hafi starfað sem söngvari og kennari eftir að hann fluttist til Íslands árið 1972, auk þess að vera kórstjóri Bessastaðakirkju í 15 ár, og hlotið heiðursviðurkenningu Garðabæjar árið 2023 fyrir ómetanlegt starf í þágu menningar.