Geirlaug Þorvaldsdóttir hefur mörg járn í eldinum, 85 ára gömul.
Geirlaug Þorvaldsdóttir hefur mörg járn í eldinum, 85 ára gömul. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótels Holts, undirbýr enduropnun veitingahússins á hótelinu. Veitingahúsinu var lokað 2018 en svo tók við niðursveifla í ferðaþjónustu og svo algjört eftirspurnarfall í farsóttinni. Nú geta velunnarar hótelsins hins vegar rifjað upp gamla tíma.

Uppselt er á hátíðarkvöldverð 14. febrúar næstkomandi. Geirlaug segir marga hafa saknað staðarins.

Mikið spurt um staðinn

„Það kemur til af því að það fór svo gott orð af okkar veitingastað. Við ætlum þó ekki að hafa hann opinn sjö daga vikunnar. Það er mikið spurt um veitingastaðinn og ég segi öllum sem hingað koma að það sé nóg af veitingastöðum í bænum en ég veit að þessi var og mun verða toppurinn. Svo höldum við að sjálfsögðu áfram að taka á móti hópum í mat fyrir alls konar tilefni. Í það höfum við afar fallegan sal sem er

...