Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Þetta er ekki góð spá og líklega versta veður ársins. Sérstaklega þegar horft er til þess að þetta nær til alls landsins,“ segir Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, en spáð er vonskuveðri, miklum vindi og úrkomu í dag.
„Við erum með viðbúnað og höfum verið að samhæfa aðgerðir og eigum fund með Veðurstofunni dag til að fylgjast með framgangi veðursins. Helst snýr okkar vinna þó að því að samhæfa lögregluembættin. En það mun reyna mikið á næsta sólarhringinn ef spáin gengur eftir,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi almannavarna, en Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir allt landið.
Icelandair hefur aflýst 38 flugferðum til og frá landinu í dag og á morgun og
...