Mikil sorg ríkir í Svíþjóð eftir skotárás í skóla í Örebro í Svíþjóð á þriðjudag þar sem ellefu létu lífið, þar á meðal árásarmaðurinn, og sex særðust, þar af fimm alvarlega. Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á alla þá sem létu lífið að sögn lögreglu
Sorg Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning lögðu blóm við skólann í Örebro þar sem skotárásin var framin.
Sorg Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning lögðu blóm við skólann í Örebro þar sem skotárásin var framin. — AFP/Jonathan Nackstrand

Guðmundur Sv. Hermannsson

gummi@mbl.is

Mikil sorg ríkir í Svíþjóð eftir skotárás í skóla í Örebro í Svíþjóð á þriðjudag þar sem ellefu létu lífið, þar á meðal árásarmaðurinn, og sex særðust, þar af fimm alvarlega.

Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á alla þá sem létu lífið að sögn lögreglu. Í yfirlýsingu frá borgarstjórn Örebro kom fram að fimm þeirra sem særðust, fjórir karlmenn og ein kona, hefðu gengist undir aðgerð á háskólasjúkrahúsi borgarinnar og tvö lægju enn á gjörgæsludeild. Að auki hlaut kona minni háttar skotáverka. Allir þeir sem særðust eru eldri en 18 ára.

Skólinn þar sem árásin var gerð er á svæði sem nefnist Campus Risbergska í Örebro. Um er að ræða skóla þar sem boðið er upp á endurmenntun fyrir fullorðna en einnig sækja grunnskólanemendur námskeið

...