„Útlitið er ágætt. Í þessum róðri ætlum við að halda okkur hér við Reykjanesið enda er þorskurinn nú að færa sig til vesturs með suðurströndinni, eins og jafnan gerist á þessum árstíma. Vetrarvertíðin fer vel af stað,“ segir Benedikt Páll Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK
Sjávarsíðan Landað úr Páli Jónssyni í Grindavíkurhöfn á mánudaginn. Aflinn eftir einnar viku túr var 122 tonn eða 385 kör, sem hlýtur að teljast gott.
Sjávarsíðan Landað úr Páli Jónssyni í Grindavíkurhöfn á mánudaginn. Aflinn eftir einnar viku túr var 122 tonn eða 385 kör, sem hlýtur að teljast gott. — Ljósmynd/Jón Steinar Sæmundsson

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Útlitið er ágætt. Í þessum róðri ætlum við að halda okkur hér við Reykjanesið enda er þorskurinn nú að færa sig til vesturs með suðurströndinni, eins og jafnan gerist á þessum árstíma. Vetrarvertíðin fer vel af stað,“ segir Benedikt Páll Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK. Báturinn fór út á mánudagskvöld og skipverjar verða að fram á helgina. Föst venja er að landað sé úr þessum báti, sem Vísir hf. á og gerir út, og í byrjun hverrar nýrrar vinnuviku sé nóg hráefni til vinnslu svo allt rúlli samkvæmt áætlun.

Veiddu stóran og fallegan fisk

„Síðasti túr var fínn. Þá vorum við hér á Meðallandsbugtinni fyrir austan og þetta gekk fínt. Við náðum 122 tonnum af fiski eða 385 körum og að uppistöðu var þetta þorskur, stór og fallegur fiskur

...