![Tölvunotkun Halla Tómasdóttir forseti lék tölvuleik við nemendur í 4. bekk Hlíðaskóla í gær. Leikurinn verður notaður í fleiri skólum hér á landi.](/myndir/gagnasafn/2025/02/06/25f600d7-da7d-4a1f-af95-ff6accafcf91.jpg)
Nemendur í 4. bekk Hlíðaskóla
tóku í gær í notkun nýjan tölvuleik, DigiWorld, sem kynntur er í samstarfi breska sendiráðsins á Íslandi og Reykjavíkurborgar. Markmið leiksins er að hjálpa börnum að skilja hvernig hægt er að nota netið á öruggan hátt.
Viðstaddar sérstaka athöfn í skólanum voru Halla Tómasdóttir forseti og Byrony Mathew, sendiherra Breta á Íslandi. Breska sendiráðið hefur unnið að þýðingu leiksins yfir á íslensku og er nú í samstarfi við Reykjavíkurborg að prófa að nota leikinn sem heimanám fyrir nemendur í 3. og 4. bekk, sem þeir vinna í eitt skipti með foreldrum og forráðamönnum sínum. Vonast er til að verkefnið geti einnig farið í skóla fleiri sveitarfélaga á landinu von bráðar, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Halla spjallaði við krakkana í Hlíðaskóla um notkun snjalltækja og netöryggi. Hún sagðist vera þakklát
...