Alls greiddu 918 útgerðir veiðigjöld á síðasta ári og skiluðu þau ríkissjóði 10,8 milljörðum króna. Um er að ræða 2% aukningu í fjármagni þrátt fyrir loðnubrest sem og að þrjár gjaldskyldar tegundir 2023 voru ekki gjaldskyldar 2024

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Alls greiddu 918 útgerðir veiðigjöld á síðasta ári og skiluðu þau ríkissjóði 10,8 milljörðum króna. Um er að ræða 2% aukningu í fjármagni þrátt fyrir loðnubrest sem og að þrjár gjaldskyldar tegundir 2023 voru ekki gjaldskyldar 2024.

Veiðigjald vegna þorsks skilaði 5,6 milljörðum króna sem er rúmlega helmingur allra veiðigjalda. Athygli vekur að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á þorski jukust um rúm 40% milli ára.

Svipaða sögu er að segja í tilfelli ýsu en hún skilaði 1.787 milljónum króna í fyrra og 1.322 milljónum árið 2023. Tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á kolmunna jukust einnig umtalsvert milli ára og fékkst innheimtur rétt rúmur milljarður vegna tegundarinnar á árinu 2024.

Mesta

...