Rafmagn Ríkisstjórn Noregs hefur kynnt þá fyrirætlun sína að frá 1. október 2025 verði heimilum gerður fastverðssamningur um rafmagn.
Rafmagn Ríkisstjórn Noregs hefur kynnt þá fyrirætlun sína að frá 1. október 2025 verði heimilum gerður fastverðssamningur um rafmagn. — AFP/Paul Faith

Samkvæmt upplýsingum frá Neytendasamtökunum og ýmsum miðlum í Noregi hefur ríkisstjórnin þar í landi kynnt þá fyrirætlun sína að frá 1. október 2025 verði heimilum gerður fastverðssamningur um rafmagn á 40 norska aura/kWh, sem jafngildir um fimm íslenskum krónum á hverja kílóvattstund rafmagns.

Í samtali við Morgunblaðið segir Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna: „Raforkuverð hefur að undanförnu hækkað mun meira en almennt verðlag og ef ekkert verður að gert mun staðan hjá okkur verða svipuð og í Norður-Evrópu þar sem raforka hækkaði fyrir nokkrum árum þrefalt, fjórfalt og hefur ekki náð að lækka aftur. Þetta getum við komið í veg fyrir ef við viljum.“

Í samanburði við Noreg er raforkuverð heimila á Íslandi um 10-13 kr/kWh og virðist fara hækkandi. Með þessari aðgerð í Noregi yrði raforka til heimila meira en

...