„Ný ríkisstjórn er einhuga um að standa vörð um framtíð Reykjavíkurflugvallar á núverandi stað í Vatnsmýrinni, svo einfalt er það,“ sagði Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra á opnum fundi um stöðu og framtíð Reykjavíkurflugvallar á…
![Völlurinn kyrr Samgönguráðherra var ómyrkur í máli á fundi um framtíð og stöðu Reykjavíkurflugvallar í gærkvöldi og uppskar fögnuð fundargesta.](/myndir/gagnasafn/2025/02/07/ba6b0ca5-84d4-4d6d-b237-1ceeb7ee803a.jpg)
Völlurinn kyrr Samgönguráðherra var ómyrkur í máli á fundi um framtíð og stöðu Reykjavíkurflugvallar í gærkvöldi og uppskar fögnuð fundargesta.
— Morgunblaðið/Eggert
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ný ríkisstjórn er einhuga um að standa vörð um framtíð Reykjavíkurflugvallar á núverandi stað í Vatnsmýrinni, svo einfalt er það,“ sagði Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra á opnum fundi um stöðu og framtíð Reykjavíkurflugvallar á Hótel Reykjavík Natura í gærkvöldi þar sem sérfræðingar tóku til máls um stöðu vallarins, rekstraráskoranir og horfur til framtíðar.
Það blés í gær og það blés í dag og það hefur gustað hressilega um Reykjavíkurflugvöll um árabil,“ hóf Eyjólfur mál sitt.
Kvað hann það hafa verið heiðskírt í sínum huga um langan tíma að framtíð aðalflugvallar og miðstöðvar innanlandsflugs væri í Reykjavík til lengri tíma „og þá hér í Vatnsmýrinni“, tók hann
...