Dagný Brynjarsdóttir, ein reyndasta landsliðskona Íslands frá upphafi, er komin í landsliðshópinn á ný eftir 22 mánaða fjarveru. Hún lék síðast með liðinu þegar það mætti Sviss í vináttulandsleik 11
![38 mörk Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki í leik gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM á Laugardalsvellinum fyrir þremur árum.](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/cd97f75a-af3d-4d36-a7af-2a4b6ee91e48.jpg)
38 mörk Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki í leik gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM á Laugardalsvellinum fyrir þremur árum.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Dagný Brynjarsdóttir, ein reyndasta landsliðskona Íslands frá upphafi, er komin í landsliðshópinn á ný eftir 22 mánaða fjarveru.
Hún lék síðast með liðinu þegar það mætti Sviss í vináttulandsleik 11. apríl 2023 í Zürich, en Ísland vann þar 2:1 með mörkum Glódísar Perlu Viggósdóttur og Sveindísar Jane Jónsdóttur.
Endurkoma Dagnýjar gæti einmitt verið gegn Sviss, og í sömu borg, því Þorsteinn Halldórsson valdi í gær 23 manna hóp fyrir
tvo fyrstu leikina í Þjóðadeildinni, gegn Sviss í Zürich föstudaginn
21. febrúar og gegn Frakklandi
í Le Mans þriðjudaginn 25. febrúar.
Næstmarkahæst frá upphafi
Dagný lék
...