![Hörður Arnarson, forstjóri.](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/5707ca18-68f4-4cc4-996b-8070796aa9d9.jpg)
Hörður Arnarson, forstjóri.
— Morgunblaðið/María Matthíasdóttir
Samkvæmt tilkynningu Landsvirkjunar hefur öllum skerðingum á stórnotendur á afhendingu raforku verið aflétt frá og með gærdeginum, 7. febrúar.
Ástæðan er batnandi vatnsbúskapur á Þjórsársvæðinu eftir umhleypingar síðustu vikna. Landsvirkjun bendir síðan á að í langtímaspá sé gert ráð fyrir að hiti og úrkoma verði yfir meðallagi næstu vikur og því hverfandi líkur á að grípa þurfi til frekari skerðinga fram til vors.
mj@mbl.is